Skrúfuhringur fyrir 25-40 hp utanborðsmótor. Þessi hringur ver skrúfuna fyrir aðskotahlutum eða fyrir að rekast í botninn. Einnig dregur úr líkum á meiðslum ef fólk er í sjó eða vatni nálægt bátnum.
- Ætlað fyrir 25-40 hp mótora
- Innra þvermál á skrúfuhring er 28 cm (11") svo hentar skrúfum upp í 24-26 cm þvermál
- Mesta dýpt á hring: 22,5 cm
- Ryðfríir boltar, lásrær og skinnur fylgja (8 mm)
- Framleitt úr níðsterku trefjaplasti
- Auðvelt í ásetningu - athugið að það þarf samt að bora fyrir boltum í yfirborðsplötu mótorsins, neðri hluti hringsins festist svo utan um mótor hælinn og verndar hann