Skilmálar og meðferð persónuupplýsinga
Neðangreindir skilmálar gilda fyrir
vefverslun batavorur.is
Vinsamlegast kynntu þér þá vandlega áður en þú pantar vörur á www.batavorur.is
Bátavörur.is áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara.
Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur og eru með vsk.
Hægt er að skila eða skipta vörum innan 14.daga gegn framvísun greiðslukvittunar.
Vörum er innan tímaramma hægt að skila og fá inneign eða skipta í aðra vöru.
Vörur fást ekki endurgreiddar.
Þegar þú verslar á www.batavorur.is getur þú valið á milli þess að sækja til okkar í bótinni á Akureyri eða fengið pöntunina þína senda með Íslandspósti.
Við sendum þér vöruna/r í pósti í gegnum stærsta póstþjónustukerfi landsins, Íslandspóstur (postur.is).
Veljir þú póstsendingu bætist 2000 kr ofan á verð pöntunar þinnar og ættir þú að geta nálgast pakkann þinn á næsta pósthúsi eftir 1-5 virka daga
(athugið að á mörgum stöðum úti á landi er pakkinn keyrður beint heim þar sem pósthús er ekki nálægt).
Við leggjum metnað í að varan berist til þín í fullkomnu ásigkomulagi. Þess vegna ábyrgjumst við vandaða pökkun og frágang vörunnar áður en hún fer frá okkur.
Bátavörur.is hlýtir lögum númer 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Bátavörur.is leggur metnað í trúnað við viðskiptavini sína.
Gögn sem innihalda persónuupplýsingar eru ekki látin þriðja aðila í té.
Auk persónuupplýsinga sem þú gefur upp söfnum við líka upplýsingum sjálfkrafa með vefkökum (vefkökur eru skrár sem við sendum til tölvunnar þinnar). Við notum vefkökur aðallega til að gera heimasíðuna ánægjulegri í notkun. Þær sýna okkur líka hvað notendur skoða á síðunni okkar sem auðveldar okkur að gera hana enn þægilegri.
Þegar þú skráir þig á póstlistann okkar fer netfangið þitt á póstlista. Þú getur skráð þig af póstlistanum með því að smella á vefslóð í pósti sem sendur er á netfangið þitt.
Stundum þurfum við að fá til liðs við okkur utanaðkomandi aðila sem hjálpa okkur við að veita ákveðna þjónustu. Í sumum tilvikum þurfum við að deila með þessum fyrirtækjum upplýsingum sem þau þurfa til að geta veitt okkur og á endanum viðskiptavinum okkar, þjónustu. Við þurfum t.d. að láta flutningsaðila fá heimilisfangið þitt svo að hann geti sent vörurnar þínar heim til þín.
Athugið: Greiðsluupplýsingar eru ætíð sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun.
Vefverslunin opinn 24/7
Bátavörur er staðsett við smábátahöfnina á Akureyri, sem í daglega tali er kölluð “Bótin”.
Sendum hvert sem er
Við sendum hvert á land sem er og kappkostum að senda vörur út daginn eftir að pöntun er móttekin.
Greiðslumöguleikar
Við bjóðum upp á kortagreiðslur og millifærslu fyrir heimsendar vörur. Einnig er hægt að staðgreiða ef vara er sótt.