Lensidæla – 2000 GPH
- 12 volta
- Dælir 2000 gallonum á klukkustund (126 lítrar á mínútu)
- Straumnotkun: 10 amper
- Stútur fyrir 29mm slöngu
- Getur dælt í 3 metra hæð
- Stærð: 15 cm hæð, 11 cm þvermál (fyrir utan stút)
- Innbyggður þéttir svo dælan truflar ekki útvörp og talstöðvar
- Öxull er úr ryðfríu stáli sem tærist ekki í sjó
- Einföld og örugg hönnun sem endist vel
- Hægt að smella dæluhúsinu frá dælubotninum til að hreinsa hana
Þessi lensidæla er tilvalinn fyrir meðalstóra og stærri báta - 8-12 metra að lengd. Sjá úrdrátt úr reglugerð hér fyrir neðan.
Úrdráttur úr reglugerð frá Samgöngustofu:.
3. Vél- og rafdælur
3.1 Austurkerfi skal vera á þann veg að mögulegt sé að dæla úr hverju vatnsþéttu hólfi bátsins. Þó er
heimilt að á litlum hólfum, svo sem stýrisvélarými, keðjukassa eða öðrum hólfum af svipaðri stærð, séfrárennsli að austurdælu með loka utan við viðkomandi hólf.
3.2 Austurdælur skulu vera vél- eða rafknúnar. Austurkerfið má vera hvort heldur sem er ein dæla og fastar soglagnir í hvert vatnsþétt hólf, með einstefnuloka á hverri lögn, eða sérstök dæla til austurs úr hverju hólfi fyrir sig. Hverri austurdælu skal vera stjórnað úr stýrishúsi.
3.3 Hver dæla skal ekki afkasta minna en tilgreint er í eftirfarandi töflu:
< 8Lm = 80l/mín.
8 -12Lm = 120l/mín.
12-15Lm = 180l/mín.