Vörulýsing
Vökvastýrisdæla og tjakkur selt sem sett. Framleitt af Teleflex, þetta er notað og var tekið af bát sem sett var í önnur tegund af hældrifi svo skipta þurfti um tjakkinn – og þá líka dæluna. Vinsamlega athugið að arminn sem festist á tjakkinn vantar, en það væri ekki mikið mál að smíða þannig stykki. Það eru rispur og skrámur á tjakk-húsinu en tjakkurinn sjálfur (krómstöngin) og einnig dælan lítur mjög vel út.
Ef þið viljið “gúgla” upplýsingar um þetta, eru partnúmerin eftirfarandi:
Dæla – HH5273
Tjakkur – HC5345